Auglýsing

Leit

Innskráningar kubbur

Leikur dagsins

Ný heimasíða

01. apríl 2007 klukkan 20:39
http://alli.fallegur.com/

alli.fallegur.com

Ný heimasíða

alli.fallegur.com

Tjékkið það

þessi out!
Aðalbjörn Hannesson

18 dagar í 18 ára

20. mars 2007 klukkan 16:59

Nkl 2 vikur í TYRKLAND!!!!! þetta er hótelið sem við verðum ekki á

Helgin var bara nokkuð góð fyrir utan að hafa misst af 24!!! Double næst!!

Ég, Maggi bi, Andri Fannar og Steini ætluðum á myndina 300 á föstudaginn.. Vorum komnir niðr eftir 13 min í sýningu en nei!!! þá var bara einn miði eftir svo við tókum nokkra hringi og svo hjem.

Bílaþvottur!!!!
Það var fyrst áætlað að þetta yrði frá kl 12-16 og var auglýst svo...
Ennnn nei við mættum þarna kl 8.30 um morguninn og ég fór þaðan upp úr 23!!!
Þetta var reyndar fín vinna og var maður orðinn nokkuð seigur að þvo glugga eftir sunnudaginn! Ég verð þó að viðurkenna að í lokin var maður orðinn nokkuð þreyttur!

Einhver þarna uppi að misskilja hvernig veðrið eigi að vera!! Rok og rigning/hagl er ógeðslegt!

Framundan:
  • söngvakeppni MA á fimmtudaginn
  • byrja æfa aftur
  • KA - Stjarnan, sunnudaginn kl 14.15
  • Double 24 Svalur, spurning hvaða veitingar verða, hugs?
  • 300! föstudagskveld? þú game?
  • 2. flokks hittingur?
Hver er maðurinn?
Vísbending 1: Hann er ekki með rauðar strípu
Vísbending 2: Konan hans er dáinn og hans fyrverandi er ill!
Aðalbjörn Hannesson

Ratatoskur ofl ofl eða kannski ekkert svo mikið ofl

14. mars 2007 klukkan 19:14
Ratatoskur:
Ljósmyndamaraþon - Ég og Steini rúntuðum um á rauðu eldingunni og tókum myndir af 12 orðum sem við fengum
Ásgeir Sigurvinsson - góður fyrirlestur en svaf reyndar 20 mín af 30 mín myndbandi
Nudd - Ég og Steini einu strákarnir í því!!
Stjórnin - fór í heimsókn til þeirra,,,, aldrei að vita nema að maður bjóði sig fram einn daginn!

KA - Þór í kvöld í 2. fl, því miður get ég ekki spilað þar sem ég er meiddur :/

Frank góður áðan að syngja fyrir okkur bekkin áðan í gegnum MSN, hann var ss veikur heima en lét það ekki stoppa sig til að syngja laglínu fyrir 1. F. Flottastur Frank!!

Nkl 3 vikur í Tyrkland :D

Einnig bara 12 skóladagar og svo páskafrí!!!! Djövvulll er ég að fíla það í botn...
Yeahhh fíla dilla dilla!!!

Annars bara lifið heil fólk!

Gullkorn úr 1. F... ef þú hefur ekkert að gera...
http://1f.bloggar.is/sida/34288/

Aðalbjörn Hannesson

Alli blakari

10. mars 2007 klukkan 14:27
Góðan daginn fólk

Punktar um lífið og tilveruna
  • 1.F keppti á blakmótinu í gær, gekk misjafnlega.. frá því að skíta upp á bak og vera bestust.. Verð að segja að blak er snilldar sport!!!
  • Árshátíð VMA í gær - Í Svörtum Fötum héldu uppi stemmarannum
  • MR liðið í Gettu Betur agalega góðir!! Horfði á keppnina í gær og maður getur ekki annað en tekið ofan fyrir þessum meisturum. Vonandi að þeir rústi Verzló!! Hasta la Victoria MR!
  • Hrafnagil með 7. flokks strákunum á eftir, þeir gista en ég veit nú ekki hvort ég geri það þar sem er leikur á morgun - Verður sjéeðveikt gaman held ég barasta!
  • KA - Grindavík på morgen, ég orðin algóður af meiðslunum.. svo þú mætir kl 16.15 út i boga! klárt
  • 24 kvöld á morgun að vanda.. eins gott að Eva beili ekki!!! enda gerir hún bestustu kökurnar
  • Ratatoskur - stefnan er að fara í ljósmyndamaraþon hjá Fálma, fjallið og nuddnámskeið ;).. ekki frá því að ég og Stone erum einu strákarnir á því námskeiði og er pilturinn að pæla að beila :O.
  • 28 dagar í 7. apríl = 18 ára :D
  • 3 og hálf vika í Tyrkland - hlakka of mikið til!!!!
  • Farinn að sinna heimilsverkunum, ekki fleiri punktar að sinni...
kv. Allmeizter!
Aðalbjörn Hannesson

Fótbolti = Snilld

07. mars 2007 klukkan 23:00
Liverpool 0-1 Manchester United

O'Shea einfaldlega of góður!!!

Liverpool 0-1 Barca


Góddur Guddjónsen og bara til hamingju poolarar!

KA 3-2 Þór


SNILLDD!!! Brosið fer ei af manni næstu daga!!!
reyndar svekk að vera eitthva pinu meiddur og hafa ekki getað verið í hóp.. Var agalega stressaður í seinni hálfleik en þetta tókst og gull í Powerade staðreynd!

Manchester United 1-0 Lille

FLottastur Larsson!!!

KA - Grindavík - Sunnudaginn - 16.15 - Boganum - Lengjubikarinn - þú þar!
Aðalbjörn Hannesson

Rugl en samt gott rugl ;)

03. mars 2007 klukkan 11:50
"Helgin er kominn og fuglar syngja í grænum greinum. Vor ilmurinn þeysist um götur bæjarins. Allir eru í sólskinsskapi, því það er jú að koma sumar. Fólk fær vonina aftur eftir langar dökkar vetrarnætur. En hvað skiptir það svo sem máli, allt sem skiptir máli er að þú ert að lesa heitustu síðuna á norðurhveli jarðar!"
Svo mælti Aðalbjörn Hannesson 3. mars, klukkan 11.30 í eldhúsinu að elda mjólkurgraut.

"Grauturinn er byrjaður að láta illa, hann bubblar og bubblar. Það er aðeins tímaspursmál hvenær sýður uppúr. Kokkurinn er í viðbragðstöðu, allt getur gerst, hvenær sem er, enginn er óhultur!"
Úr spennusögu Aðalbjarnar, Hinn ógurlegi Grautsi!

Setningarfræðin ekki svo slæm eftir allt?

Palli í kvöld? - Þú þar?

Kvöldvaka í kvöld! - Þú þar?

Gettu Betur var snilld - Hefði samt verið beztast ef við hefðum unnið!!! "grát"

Ég fékk seinast helgarfrí í boltanum fyrstu helgina í janúar!!! ss leikur hverja helgi!!! Það er reyndar snilld!!

Spurning hvort maður skjéeellli sér á skíði einhvern tíman? rifja upp gamla takta!

Meira var það ekki, búinn að lækka strauminn í grautnum og bara róleg vakt núna.


Tveir kóngar saman, Axel Gauti og Sigurvin FRANK!!
Aðalbjörn Hannesson

Myndarlegt blogg!!

25. febrúar 2007 klukkan 18:36
Spilaði á móti FH í gær.. það gekk ágætlega þótt úrslitin hefðu mátt vera aðeins hagstæðari.. en við töpuðum 3-0.. ég kom inná í hálfleik. Til gamans má geta að 6 leikmenn sem spiluðu með FH í gær hafa spilað fyrir A-landsliðið og sennilegast flestir hinir fyrir yngri landslið. Atvik leiksins var sennilega þegar að Monsi klobbaði Bjarka Gunnlaugsson beint fyrir framan varamannabekkinn hjá FH. Myndarlegur Monsi!

Double 24 partæ í kveld... Eins og staðan er núna stefnir allt í fámenni en samt klárlega góðmenni. Steinn, Andri Fannar und Kristinn Þór hafa boðað komu sína. Ég og Andri fórum áðan og keyptum veitingar fyrir lýðinn.. Myndarlegir að vanda!

Þið hefðuð átt að sjá hvað ég, Steini og Massi Bi vorum agalega myndarlegir í gær. Massi bakaði vöfflur eins og honum einum er lagið, einnig gerði hann sjokkolade. Ég og Steini vorum aftur á móti í rjóma og jarðaberjaverkunum og segja fróðir menn að slík handbrögð hafa ekki sést nú á öldum. Amma var okkur svo til halds og trausts ef eitthvað hefði nu farið úrskeiðis (sem btw gerði ekki (H)). Guðrún, Anna og Karó borðuð svo okkur til samlætis.. svo var rústuðum við strákarnir Trivial!


helMassaður Blö þvældi nokkra landsliðsmenn áður en Auðunn Helga braut á honum og fékk gult - fyrir þá sem ekki vita er Auðunn sennilega besti varnarmaðurinn á Íslandi sem stendur.
Aðalbjörn Hannesson

SKO - vantar fyrirsögn - SKO - hugmynd?

20. febrúar 2007 klukkan 12:30
Ætli maður hafi ekki fylgt straumnum og farið í SKO, tala meira, borga minna...

Er sem stendur í double hádegi þar sem að Hófa stærðfræðikennari hefur ekkert látið sjá sig á nýrri önn.. ég err reyndar sáttur við að hafa færri tíma, ekki spurning með það... enda er ég sennilega í léttasta stærðfræði áfanganum í framhaldskóla, stæ 203.

4 dagar í FH - KA í mfl í lengjubikarnum á Akranesi... verð að segja að ég vona innilega að ég spili þennan leik... FH Íslandsmeistarar þrjú seinustu sumur... Verður gaman að leika á móti köllunum sem maður sér í sjónvarpinu eins og Tryggva Guðmunds og Auðunn Helga!

Ein góð spurning hvort finnst þér vöfflur eða bollur betri?


Persónulega verð ég að segja að vöfflurnar eru klassa fyrir ofan.. Tala ekki um ef maður setur súkkulaði, rjóma og jarðaber á þau... það er agalegur killer.. Ég varð fyrir pínu vonbrigðum með bolluvertíðina.. þetta var miklu betri tími í minningunni..

20. feb :O tíminn aggalega fljótur að líða.. en kveð að sinni með bros á vör tilbúinn í verkefni dagsins o.s.frv.
Aðalbjörn Hannesson

Heyja heyja - langar að kunna sænsku

14. febrúar 2007 klukkan 21:31
Nu skal jeg snakke dansk.. Jeg elske DAN 202, det er meget sjovt i timen og logbog og ég kann ekki meir i dönsku.. (btw ég er ekki að tala i kaldhæðni, danskan er að gera sig... er miklu duglegri i dönskunni nuna en fyrir áramot)

Var í jóga áðan og verð að segja ykkur að það er killer að fara i jóga og vera kvefaður. Þetta byggist svo mikið á að anda vel.

Valentinusardagurinn i dag - verð að segja að ég stóð ekki undir nafni.. bæti þér það upp seinna ;)

Konukvöld gær í MA - það var kjánalegt

Næstkomandi laugardag - Lilja þú færð alla athyglina þennan daginn... stefnan að sjá þig spille handbold og svo verður crazzzy teiti um kvöldið, verð samt að fara snemma að sofa - leikur daginn eftir í deildarbikar gegn HK.

klipping eða lubbi?

24 laaanng best eða?

BOLLLUDAGURINN I NÆSTU VIKU!!! einhver game í bollukaffi á kristjáns café á laugardaginn klukkan 14.30?

laaangar á Old Trafford!!!!! þú game? næsta vél til Manchester?
Aðalbjörn Hannesson

Tyrkland og Ö-blak

10. febrúar 2007 klukkan 11:42
Steikt blogg seinast segiði? jújú Franksý er svo sem ágætur...

Annars þá er bara allt magnað að frétta af mér, gengur bara ágætlega á flestum vígstöðum þessa daganna.

Kuldi???
Minn ekki að fýla kuldan sem er á Akureyrinni þessa daganna, er eiginlega bara farinn að dreyma um Tyrkland. En ég verð vonandi þar á átjánda afmælisdeginum mínum með fótboltanum í KA. Verður sjéeeðveik ferð held ég barasta, 5 stjörnu hótel og alltaf gott veður (óskhyggja).


Öldungarblak...
Hver er game í að joina mig í að fara æfa blak þegar maður leggur knattspyrnuskónna á hilluna?
T.d. eru ma&pa núna að keppa á blakmóti, crazzzy stuð hjá þeim get ég sagt ykkur.
Svo er mót sem heitir Öldungarmótið á hverju ári, þar koma öll liðin af landinu og etja kapp.. Þetta er víst algjör snilld.. Spurning hvort maður joini ekki bara pabba í Ö-liðið hjá KA þegar maður hefur aldur til (30 ára)..

Pff... enginn?
Aðalbjörn Hannesson

Sjálfráða!!!

Flottustu síðurnar

Ég er....

Aðalbjörn Hannesson
f. 1989 þann 7. apríl
skóli: MA - 1.F
Æfi og þjálfa fótbolta hjá KA
Skuringakona er snilld

Könnun

Maddurinn??